Forks

Washington, USA

14.01.2010 09:14:27 / Demi

kalifornía

Jæja, ég ætti að fara að blogga aftur, en ég get það ekki í augnablikinu.

ég ég veik og til þess að skrifa þarf ég að halda inni vinstri takkanum á músinni you know?

æj ég útskýri bara seinna


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.11.2009 15:44:50 / Demi

Íslenskutími


Jæja, Íslenskutíminn í dag var fremur... tilfinningaþrunginn.
Það svona grétu allir, án djóks!
Tveir strákar úr beknum eru að flytja til Noregs og allir að gráta yfir því.
Ég verð að viðurkenna það að ég fór einnig að skæla. Mest útaf því að allir aðrir voru grenjandi í kringum mig. Þá finnst mér nú frekar erfitt að sleppa því að gráta.
Æj eitthvað svo leiðinlegt að þeir eru að fara. Að mínu matu voru þeir skárstu/skemmtilegustu strákarnir í bekknum.
Og að þurfaað fara frá öllum vinum sínum :/ Æjæj
En nóg um það
ég er ekki búin að vera dugleg
ekki þið heldur svo þip eruð meðsek.
Ég held ég fari bara að sofa núna.

haha

-Demi

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.10.2009 23:02:54 / Demi

FLÝTIÐI YKKUR!!


Þið verðið að flýta ykkur að fara að sofa áður en hann Óli Lokbrá kemur!!!

-Demi


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.10.2009 18:42:52 / Demi

In the middle of the night


Úff sæl og blessuð.
Ég er búin að sofa mikið síðustu tvo daga. Það er vetrafrí og ég sef alltaf langt framm yfir hádegi. Sem er fínt. Nema í morgun var ég vöknuð hálf átta! :O
WTB(what the beep)
Ég hef ekkert mikið til að segja hér á þessu bloggi. Var bara svona að láta vita af mér.
Ég finn fyrir þörf til að spila á fiðluna, en hún er örugglega fölsk svo hvað get ég gert?
Ég þarf líka að taka til í herberginu mínu sem ég kannski bara geri á morgun. ;)

-DemiBook

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.10.2009 23:02:20 / Demi

It's October.


Hæ þið þarna fáu einstaklingar sem ennþá drullast til að fara inná þessa síðu af og til til að lesa blogg.
Eins og þig hafið þá tekið eftir, þá er ég ekkert svo dugleg að blogga bara. En það er allt í lagi, mín vegna.

Ég er að drepast í hausnum í augnablikinu. Ein ástæðan er sú að í íþróttum um daginn var körfubolta dúndrað framan í mig, þegar ég var með áður. Boltinn fór í gleraugun sem skekktust smá, en ég lagaði það bara. Núna, ef ég kem við efst á nefinu á mér eða eitthvað, þá er það vont.

Svo eru bara NOKKRIR dagar í New Moon! Omgz. Mig hlakkar svo til. Þá ætlum við að mæta fyrr og svona eins og í fyrra :P

Það er ekkert svo mikið í gangi í augnablikinu, en það er í lagi.

Hmm ég hef eitt skemmtilegt að segja; ÉG FÉKK 8.9 Í SÍÐASTA STÆRÐFRÆÐIPTÓFI *stolt*

Reyni að blogga meir seinna,
Demi


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.09.2009 18:09:00 / Demi

Mon Coeur S'ouvre A Ta Voix


Eða My heart opens to your Voice.

og svo er "โยว่าจะไม่สมเหตุผลและฉันไม่สามารถมีได้ "awesome. Þetta þýðir: Yo, That's illogical, I can't have it.

:P Tíhí ég er að fíla mig á Google Translate XD

Íþróttir eru ömurlegar. Ég er öll aum eftir síðasta íþróttatíma. Svo er sund ekki mikið skárra. Það versta við sund er að maður þarf að synda hratt og það er ekki hægt að anda þegar maður vill. Það er bara gaman að synda í sjónum, með fiskunum og svoleiðis :) I love dat.

Nú sit ég hér, ætti að vera að læra stærðfræði en ég bara bara nennissuiggi :/ Á að gera eitthvert líkindatré sem ég kann ekkert á.
Eina skemmtilega í augnablikinu er það að ég á kók, og það er verið að gera pönnsur. yummmy. Ég er svöng svo það er bara gott að fá gott að borða þegar maður fékk vondann fist í hádeginu XD

Ég elska nýja Muse diskinn, it's my kind of music.. in a way :P En allavega, hann er góður, eða mér finnst það - veit ekkert hvað öðrum finnst.
Nýtt lag með Muse verður í New Moon sem heitir I Belong To You (Mon Coeur S'ouvre A Ta Voix) Tíhí, það er awesome. En Mon Coeur S'ouvre A Ta Voix er gömul aría sem þeir settú í lagið. Love it.

Kisan mín, Kleópatra er að breima, helv pirrandi!! Svaf lítið sem ekkert aðfaranótt þriðjudags og þurfti því að sleppa skólanum og þá missti ég að munnlegu prófi í náttúrufræði.. ekki að það sé slæmt samt :P

Ég vona að það nenni eitthver að lesa því að mér finnst gaman að blogga, en það er ekkert gaman að blogga fyrir engann sem les, og allrabest er þegar ég fæ komment. Bara eitt hææ væri ágætt =)

        Demi


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.09.2009 16:38:05 / Demi

Þetta internet..

Þetta Internet er svo hægfara núna :/
Blaah það sökkar.
Jæja, ég er núna hjá pabba og á morgun fer ég heim til mömmu aftur.
Það er ekkert að gera, ég er hérna ein því að fólkið fór í sund :/
Hm Design Star er í gangi.. bara endursýningar.
Blablablablablaaa ekkert að gera mér leiðist svo. Ég get ekkert gert í tölvunni útaf helv. internetinu sem er á núllinu :(
En ég nenni ekki að blogga heldur, svo bæbæ.

-Demi

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.09.2009 19:24:01 / Demi

Kanye West.. This may hurt just a little.


Ókei mig langaði líka til að hvarta yfir honum, því svo margir eru að því :P
Öll myndbönd hafa verið tekin útaf YouTube svo ég get ekki sýnt ykkur neitt, en það sem gerðist var: Taylor Swift vann verðlaun á VMA fyrir "Best Female Video" og hún var svaka glöð, fór upp á svið og byrjaði að þakka fyrir sig. En þá kom Kanye West upp á sviðið, tók af henni míkrafóninn og sagði: "Taylor. Ég samgleðst þér. Ég mun leyfa þér að klára en Beyonce Knowles á eitt besta myndband sögunnar" Svo fer hann bara útaf sviðinu og skilur Taylor eftir þarna uppi í sjokki, hún var örugglega gráti nær.
En vegna þessarar hegðunar var Kanye rekinn út af VMA. Jafnvel þó að hann átti eftir að syngja lag á hátíðinni.
En því að Beyoncé er svo góð og falleg kona, þá sagði hún Taylor að koma upp og klára ræðuna sína :)
Awesome að þetta varð allt gott á endanum, en hinsvegar hata allir Kanye núna XD haha.

En anyhooo, Twilight talk.
OMG OMGOMG OMG New Moon Trailerinn!!!



OMGOMG Verður MIKLU BETRI en Twilight...

FUCK U KANYE. IT'S LIKE U STEPPED 0N A KITTEN. - Katy Perry

-Demi ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.09.2009 16:01:21 / Demi

Íþróttir


Ahh ég hata skólaíþróttir :/
Þær eru leiðinlegar, eins og fólkið í skólanum.

Ég fór til hjúkkunnar í dag, útaf verk í hendinni og fætinum sem eru búin að vera dálítið lengi, en hún gat ekkert gert og sagði mér að fara til.. bæklunarkæknir.. ok.. Jájá, allveg örugglega.
En ég fer til læknis, allveg örugglega. Þetta er vont :(

abcdefg... samrændu prófin eru í næstu viku, djöss. Ekki er ég að nenna þessu.

I have no nothing to say, annað en ég þarf að læra svo já.... bæb

-demi


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.09.2009 13:48:47 / Demi

AHHHH


Ég ætlaði að vera geðveikt dugleg að blogga og svoleiðis... en neinei. Ekkert Internet. Ég er búin að vera internetslaus í meira en mánuð!! Það tók vodafone 2 vikur að segjast ætla að koma en ég gafst upp og setti upp internetið sjálf! Svo þegar það var búið, þá var eitthver helv. villa í gangi ;( En já, hér er ég komin aftur. Ætla að verða duglegri að blogga.

Ég er nefnilega flutt. Í blokk. Litla. Lítil herbergi, eldhús og þannig ;( Ekkert besta hús í heimi en svona já... þetta er bara tímabundið. Ég er byrjuð í 10 bekk eins og flestallir unglingar fæddir 1994. Heh jájá.

Ég var veik í gær og í fyrradag, no worries, engin svínaflensa hér :'D
Hmm... ég hef samt ekkert að segja, þannig séð... sumarið var jafnspennandi og ekkert.. hmm já það er komin ný stelpa í bekkinn. Hún heitir Inna og er awesome. Hefur lesið Twilight og fleiri vampírubækur :D
Jeeei.

Ég elska fjólubláann. Hmm áhvað að bara segja eitthvað. Veistu, mig langar til þess að breyta litlum á þessari síðu, þessi græni er orðinn leiðilegur. Má ég það Rakel? OK, takk ;')

Ég er hjá mömmu núna, á eftir fer ég til pabba. Þá mun ég örugglega vinna í herberginu mínu. Það eru 2 herbergi sem ég get fengið, ég vil það stóra, en kannski fær Embla það.. grr. I hope I get the big one. Ég veit hvað mig langar í. Svona "gamaldags" legt herbergi. Með dökku og ljósu. Fjólubláa veggi..... me likey. Svo verð ég með stórt rúm svo jeij.

Jájá ég ætla að fara að gera eitthvað annað en blogga, ok bæ ;)

-Demi

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.07.2009 23:19:48 / Demi


Hér sit ég, heima hjá pabba, ekkert að gera. Eða jú, ég er að horfa á April Showers.
Ég fer inn á þessa síðu og ég sé 3 komment undir seinasta bloggi.. ókei... kemst að því að heimar 3 manneskjur lesa bloggið.. hmm...
Takk. amk er það engin. það er gott, right?

hef ekkert að segja svo ég blogga þegar ég hef eitthvað að segja, ok?

-Demi

» 1 hafa sagt sína skoðun

03.07.2009 15:34:11 / Demi

Legend of the Seeker


Góðann daginn :D
Í dag er gott veður, en ég nenni ekki út. Ég var úti áðan. Hmm ég fer út á eftir ;)
Ég hef nú ekkert að segja.. svo já XD
Ég hef samt verið að spá í hvort ég sé bara að blogga fyrir eina manneskju eða? Það er eins og bara María lesi þetta..
bara að spá.
Ef þú lest, endilega kommentaðu og láttu mig vita af þér ;)

Ég er að horfa á 2 þætti núna, Buffy & Legend Of The Seeker <3
Jeei.

En já.. ætla að fara að gera eitthvað, út að lesa eða horfa á Buffy eða LOTS!

-Demi


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.06.2009 22:32:46 / Demi

crash & burn

Sæl.
Ég veit vel að ég hef ekkert verið dugleg að blogga en svona er ég bara (;
Ekkert mikið búið að vera að gerast síðusta daga, ég er bara í vinnunni og þegár ég er búin þar fer ég heim að horfa á Buffy <3 :'D
Gaman hjá mér en núna elska ég Buffy bara omgomgomg *teenie moment*

Já. Um daginn hitti ég Rakel, eða ég fór heim til hennar. Þar settum við upp mjög undarlegt trampolín sem er allveg örugglega geimskip ;D Hver veit hver veit.
Það var bara mjög gaman, vonandi fáum við að gera svona aftur seinna Rakel (;

Núna er ég að hlusta á Jesse McCartney, nýja diskinn(hann er ekkert svo nýr samt). Hann er óvenjulega skemmtilegur, eða sum lög þar að segja :D
Crash & Burn er mitt uppáhálds :P I guess I like the beginning the most. Ég elska þegar hann syngur svona lágt niðri.. he should do it more!

Svo er ég líka að fíla Photograph - Def Leppard, Run - George Strait, Wild At Heart - Gloriana og The Way It Goes - Gloriana :D
Tjékk át them songs :D

Ég hefði ekki bloggað ef internetið væri ekki að leika sér í slow motion núna.

Ég tók nokkrar skemmtilegar myndir um helgina, ég ætlaði að setja eina mynd en nei, internetið er á núllinu svo ég get það ekki ;(

Hahah um daginn var ég inná eitthvað omgele.com rsum og það spurði mig einn hvað ég héti. Ég sagði Ingveldur og sagði að það væri íslenskt nafn, þá svarar manneskjan; "Google confirms that" :'D

Ég er bara að segja skemmtilegar leiðinlegar tilgangslausar sögur.

Ég nenni ekki að blogga meir.

Peace Love - Demi ;* <3

» 1 hafa sagt sína skoðun

08.06.2009 16:02:02 / Demi

Insomnia



Í nótt svaf ég lítið sem ekkert. Eða jú ég sofnaði um 5 leitið og vaknaði klukkan hálf 8. Úff. Ég gat ekki sofið vegna hrotunum í pabba og það var svo effin bjart þarna! Það voru engin gluggatjöld sem ég gat dregið fyrir gluggana. Svo að ég setti Finding Neverland á og ég sofnaði loks þegar myndin var hálfnum.
Ég fékk samt að sofa í morgun. Sem var gott.
Svo fekk ég Subway í morgun/hádegis mat. Mmm ég var búin að vilja Sumway í þónokkrusn tíma. Svo ég loksins fékk það.
EN, það er ekki nóg. Ég vil fá SKÓGARBEJAMIX! OMG ég er veik í þetta.
Sweet Sweet Sweet.
Úff, ég hef ekkert að gera. Mér leiðist svo.
Ég ætla að fara út í búð og kaupa Fairytales. Eða reyndar ætl systur mínar að gefa mér þetta í afmælisgjöf. Ég átti afmæli fyrir mánuði og ég er ekki enn búin að fá afmælisgjöf frá systrum mínum og pabba :/
Suss. Þau þurfa að fara að gera eitthvað í þessu.
Hmm. Mig langar óendanlega mikið til að GERA EITTHVAÐ en það er bara alls ekkert að gera hérna. Enginn er heima nema Embla held ég en hún er að fara í afmæli kl. 7 og þá nátúrulega er ekkert hægt að gera.
Hmm...

-Demi

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.06.2009 20:06:06 / Demi

skógarberjamix


^^Væri allveg til í að vera þarna núna

Langar óendanlega mikið í þannig núna!
Hvar er það???
Ég veit að það er til í bónus. Kannski ég fari þangað bráðum! Kaupi mér HELLING!!
Bara o.m.g!
Ég er í iTunes maraþoni... s.s. ég ætla að spila ÖLL lög einusinni..
Ef ég geri það samfleitt, mun það taka 8,2 daga... o_O
Hahah.
Langt.
Ég gæri verið í bíó núna en mátti ekki fara því að mamma er kannski með blöðrubólgu... neei. Ekki fá hana, þá lendir þetta ALLT á mér! Ég nenni því 100% alllllsssseeekkkkiiii!
Ég held að Ásthildur sé komin með leið á mér vegna ég var ALLTAF að passa hana á tímum. Svo að ég má ekkert vera nálægt henni og Sesselja er frekja heimsins.
Ogogooooog á morgun er svokallaður "Íþrótta dagur" í skólanum. fml.
Ég hata þann dag!
Hata
Hata
Hata þann dag!
Ég vil ekki fara þá.

Ókei, tölum um eitthvað skemmtilegt.
Ég elska ennþá Alecander Rybak =] Hann er krúttlegur ! Ég elska lögin hannnnssss :P
Awesomeness

Mig langar í skógarberjamix og kók...... 8-]

-Demi

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Heimsóknir
Í dag:  6  Alls: 20609